Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði
Varnargarðarnir á Brún voru boðnir út og hlaut ÍAV verkið sem fólst í að byggja tvo garða, leiðigarð og þvergarð úr, jarðefnum og bergskeringum af vinnusvæðinu.
Vinnusvæðið var í rúmlega 620 m hæð yfir sjávarmáli.
Í verkinu fólst einnig að leggja vegslóða innan garðsvæðisins í framhaldi að vegslóðanum sem lagður var upp að vinnusvæðinu árið 2002.
Einnig fólst í verkinu að grafa framræsluskurði og hlaða grjóti í garðtá þvergarðs til styrkingar og varnar grjóthruni fram af Brún og rofi af völdum afrennslisvatns af svæðinu.
Helstu verkþættir í verkinu samkvæmt útboðsgögnum voru:
-
Gerð vegslóða og vinnuvegslóða.
-
Gröftur framræsluskurða.
-
Fylling í varnargarða.
-
Fylling í kjarnann.
-
Koma fyrir þekjugrjóti til rofvarnar í opinn framræsluskurð.
-
Hlaða tágrjóti meðfram þvergarði til styrkingar og varnar.
-
Helstu magntölur voru fyllingar í garða 210.000 rúmmetra og
- uppsetning netgrinda 6.145 fermetra.
Verkkaupi | Seyðisfjarðarkaupstaður |
Frumathugun | Verkfræðistofa Austurlands |
Verk hafið | Júní 2003 |
Verklok | Júlí 2005 |
Hönnun frágangs og uppgræðslu | Landslag |
Eftirlit | Hönnun |
65.261556,-14.001191|/media/27774/Snjoflodavorn_Seydisfjordur.png?width=250&height=109&mode=crop|Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði|/starfsemi/verk/fyrri-verk/gatnagerd-og-jardvinna/snjoflodavarnir-a-seydisfirdi/| Varnargarðarnir á Brún voru boðnir út og hlaut ÍAV verkið sem fólst í að byggja tvo garða, leiðigarð og þvergarð úr, jarðefnum og bergskeringum af vinnusvæðinu.|terrain | blue | Nánar