Harpa - Tónlistar- og ráðstefnuhús
Tónlistar og ráðstefnuhúsið Harpa er um 30.000 m2 að stærð og er eitt af kennileitum Reykjavíkur. Í Hörpu eru fjórir tónlistar og ráðstefnusalir.
Stærstur salanna er Eldborg sem tekur 1.800 manns í sæti. Ráðstefnusalurinn Silfurberg tekur 750 manns í sæti en salnum er hægt að skipta upp í tvö rými. Í Norðurljósum eru sæti fyrir 450 áheyrendur og Kaldalón tekur um 200 manns í sæti. Í sölunum má finna fullkomnasta hljómflutningsbúnað í heiminum í dag.
Glerhjúpur Hörpunnar er um 12.000 m2 og samanstendur af 9.300 rúðum. Hér rís Harpa á einni mínútu.
Byggingin hýsir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslensku óperuna ásamt því að vera ráðstefnuhús á heimsmælikvarða.
Harpa hlaut Mies van der Rohe verðlaunin árið 2013 - hér má nálgast bókina á vefnum.
Verkkaupi | Portus |
Verk hafið | 2006 |
Verklok | 2011 |
Bygginga- og hönnunarstjórn | ÍAV |
Arkitektar | Henning Larsen Architects Artec Batteríið |
Hönnun glerhjúps | Henning Larsen Architects Artec Olafur Eliasson |
Verkfræðileg hönnun | Mannvit, Rambøll |
Hljóðvist | Artec |
Eftirlit | EFLA |
64.150294,-21.932285|/media/27742/Harpa_01.jpg?width=250&height=109&mode=crop|Harpa - Tónlistar- og ráðstefnuhús|/starfsemi/verk/fyrri-verk/stofnanir-og-skrifstofuhus/harpa-tonlistar-og-radstefnuhus/| Tónlistar og ráðstefnuhúsið Harpa er um 30.000 m2 að stærð og er eitt af kennileitum Reykjavíkur. |terrain | blue | Nánar