Þjóðleikhúsið, viðbygging
Aðstöðusköpun byrjaði í ágúst 2013 og vinna við verkið sjálft hófst í byrjun september.
Full starfsemi var í Þjóðleikhúsinu á verktímanum og gekk samstarf þar á milli mjög vel. Verkinu lauk 20.des. 2013 og Þjóðleikhúsið fékk lykla af viðbyggingunni afhenta þann sama dag.
Verkinu lauk því nákvæmlega skv.verkáætlun þrátt fyrir ýmsar viðbætur.
Byggingin er límtrésbygging, klædd að utan með læstri zinc-klæðningu, tengd Þjóðleikhúsinu með inndregnum hálsi, klæddum gatastáli. Milligólf er byggt upp af stálsúlum og stál- og timburbitum. Til norðurs er stór vöruhurð við lyftugatið og gönguhurð verður til austurs við suð-austur horn.
Uppbygging þaks ofan á aðalburðarvirki hússins eru timbursperrur með krossviðarklæðningu undir PVC dúk.
Verkkaupi | Framkvæmdasýsla Ríkisins |
Verk hafið | Ágúst / sept. 2013 |
Verklok | 20.desember 2013 |
Byggingastjórn | Framkvæmdasýsla Ríkisins |
Arkitektar | Teiknistofa Garðars Halldórssonar |
Burðarþolshönnun | Verkfræðistofa Þráinn og Benedikt |
Eftirlit | Framkvæmdasýsla Ríkisins |
64.147415,-21.930574|/media/27749/Thjodleikhusid.jpg?width=250&height=109&mode=crop|Þjóðleikhúsið, viðbygging|/starfsemi/verk/fyrri-verk/stofnanir-og-skrifstofuhus/þjodleikhusid-vidbygging/| Byggingin er límtrésbygging, klædd að utan með læstri zinc-klæðningu, tengd Þjóðleikhúsinu með inndregnum hálsi, klæddum gatastáli.|terrain | blue | Nánar