Straumhækkun Straumsvík

Alcan á Íslandi hf., sem er í eigu Rio Tinto Alcan, hefur samið við ÍAV um tilteknar verklegar framkvæmdir við fyrri áfanga straumhækkunarverkefnisins í Straumsvík. Er þetta fyrsti samningurinn um verklega framkvæmd þessa verkefnis.

Straumhækkunarverkefnið í heild skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn, sem er hafinn, miðar einkum að því að efla rekstraröryggi álversins og undirbúa straumhækkun, sem stefnt er að á síðari stigum og er megintilgangur seinni hluta verkefnisins. Fjárhæð samningsins við ÍAV er 4,1 milljón Bandaríkjadala eða 526 milljónir króna. Þegar framkvæmdir standa sem hæst er gert ráð fyrir að starfsmenn verkefnisins verði allt að 70 talsins.

Um er að ræða byggingarframkvæmdir við aðveitustöð í austurenda álverslóðarinnar sem lúta að tengivirki, rofavirkjum og afriðladeildum, auk þess sem leggja þarf neðanjarðartengingar milli rofavirkis og afriðladeilda. Í heild sinni felur fyrri hluti straumhækkunarverkefnisins í sér fjárfestingu fyrir liðlega 100 milljónir Bandaríkjadala og fellur um þriðjungur fjárhæðarinnar til á Íslandi.

Í samningnum við ÍAV er einnig kveðið á um frekari verkefni sem eru háð því að ákveðið verði að ráðast í seinni hluta verkefnisins, sjálfa straumhækkunina, sem felur í sér heildarfjárfestingu fyrir yfir 200 milljónir Bandaríkjadala til viðbótar við fyrri hlutann.

 

Verkkaupi Alcan á Íslandi hf
Verk hafið Ágúst 2010
Verklok Nóvember 2011
Eftirlit HRV
64.047993,-22.01903|/media/43848/RTA_01.jpg?width=250&height=109&mode=crop|Straumhækkun Straumsvík|/starfsemi/verk/fyrri-verk/virkjanir-og-storidja/straumhaekkun-straumsvik/| Alcan á Íslandi hf. hefur samið við ÍAV um tilteknar verklegar framkvæmdir við fyrri áfanga straumhækkunarverkefnisins í Straumsvík.|terrain | blue | Nánar